Tix.is

Um viðburðinn

Píanistinn Romain Collin ásamt frábærum tónlistarmönnum, trompetleikaranum Ara Kárasyni og tónlistarkonunni GDRN Guðrún Ýr Eyfjörð til leiks á tónleikum sínum í Hannesarholti.

Romain dvaldi á Íslandi haustið 2020 við tónlistarsköpun og tónleikahald, en þurfti frá að hverfa vegna heimsfaraldurs. Hann er nú mættur aftur til leiks.

Romain Collin er framsýnt tónskáld, stórkostlegur jazzpíanisti og rísandi stjarna sem skín sannarlega skært í jazzheiminum“ skrifaði Jon Weber hjá National Public Radio í Bandaríkjunum. Collin fæddist í Frakklandi og býr nú New York en hann fluttist upphaflega til Bandaríkjanna til að sækja sér menntun við Berklee College of Music í Boston undir handleiðslu Dave Liebman og Joe Lovano meðal annarra.

Árið 2007 útskrifaðist Romain Collin frá hinum virta skóla „Thelonious Monk Institute of Jazz“ þar sem hann hlaut fullan námsstyrk sem píanóleikari í hljómsveit sem var sérstaklega sett saman af Herbie Hancock, Wayne Shorter og Terence Blanchard. Á þessum árum fór Collin í tónleikaferðalög með Hancock og Shorter víða um heim auk þess sem hann spilaði með mönnum eins og Marcus Miller, Jimmy Heath og Terence Blanchard. Síðan þá hefur hann numið undir handleiðslu Larry Goldings, Russell Ferrante, Ron Carter, Charlie Haden, Mulgrew Miller og Wynton Marsalis.

Romain Collin hefur gefið út fjórar plötur sem allar hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Samhliða því að þróa sinn eigin sólóferil leiðir hann tríó ásamt munnhörpusnillingnum Gregoire Maret og gítarleikaranum Bill Frisell en plata þeirra Americana kom út árið 2019. Auk þess er hann iðinn við kolann sem meðspilari á tónleikum og upptökum með fólki á borð við Mike Stern, John McLaughlin, Christian McBride, Lauryn Hill og Kurt Rosenwinkel.

Nokkrar umsagnir um Romain Collin:

[A] winning new album… There's no doubting Mr. Collin's pianism which is lucid and flowing…. His own compositions…(are) distinguished by dark grandeur, dynamic swells and a chamberesque layering of texture…distinctive.
– Nate Chinen, The New York Times

An extraordinary album…Collin's style is unique and engaging without obvious influences. 4.5 stars
– Karl Akermann, All About Jazz

An absolute masterpiece…one of those rare albums that just grabs and holds your attention from start to finish- brilliant. 5 stars
– John Adcock, Jazz Journal (UK)

A visionary composer, an extraordinary jazz pianist and a very bright young rising star in the jazz world.
– Jon Weber, NPR

Ari Bragi Kárason er einn eftirsóttasti tónlistarmaður þjóðarinnar um þessar mundir. Hann hefur komið við sögu á sumum af stærstu tónlistarverkefnum sem gerð hafa verið síðustu ár. Eftir útskrift frá tónlistarháskóla í bandaríkjunum vorið 2013 hefur hann verið áberandi í íslensku samfélagi og má þar nefna dæmi eins og að vera dómari í þáttunum Kórar Íslands, tónlistarstjóri stórtónleika Friðrik Dórs, fastameðlimur hljómsveitarinnar Mezzoforte og svo mætti lengi telja. Árið 2011 vann hann á íslensku tónlistarverðlaununum “Bjartasta Vonin” í öllum flokkum og þótti það merkilegt fyrir þær sakir að jazz trompetleikari skildi hreppa þau verðlaun. Ari Bragi hefur er einnig meðlimur í hljómsveitinni ANNES sem er margverðlaunuð hljómsveit skipuð sumum af stærstu nöfnun í íslensku tónlistarlífi.

Guðrún Ýr Eyfjörð er konan á bak við sviðsnafnið GDRN og er gestur Romains á þessum tónleikum. Það þarf vart að kynna hana fyrir íslendingum, en hún hefur skinið skært í íslensku tónlistarsenunni á undanförnum árum með dáleiðandi söng og einlægri lagasmíð. GDRN hóf tónlistarferil sinn á tíu ára klassísku fiðlunámi, þar til hún hóf nám í jasssöng og jasspíanóleik, sem leiddi hana á endanum á þá braut sem hún er núna. Eftir útgáfu fyrsta lagsins hlaut hún verðlaun sem áhugaverðasti nýji tónlistarmaðurinn á Íslensku tónlistarverðlaununum 2017. Fyrsta plata hennar "Hvað ef" frá 2018 var útnefnd plata ársins á tónlistarverðlaunum Grapevine og útnefnt til Norrænu tónlistarverðlaunanna fyrir plötu í fullri lengd. Hún rakaði að sér fernum verðlaunum á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019, fyrir lag og plötu ársins, fyrir vídeó ársins "Lætur mig" og fyrir að vera besta söngkona ársins í sínum flokki. ári 2020 gaf hún út plötuna "GDRN" ásamt einvalaliði tónlistarmanna.