Tix.is

Um viðburðinn

Skjaldborg—hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin í samstarfi við Bíó Paradís helgina 18.-20. september 2020.

Skjaldborg—hátíð íslenskra heimildamynda er nú haldin í Reykjavík í fyrsta sinn og hreiðrar um sig í Bíó Paradís—heimili kvikmyndanna.

Skjaldborg er uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Þrettán myndir verða frumsýndar á hátíðinni og sjö verk í vinnslu kynnt. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Hrafnhildur Gunnarsdóttir og verða sýndar þrjár myndir úr hennar höfundasafni auk þess sem Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson mun leiða masterclass með Hrafnhildi.

Stakir bíómiðar kosta 1.690 kr. og Skjaldborgarpassi sem gildir á allar sýningar hátíðarinnar kostar 8.900 kr.

  • Skjaldborgarpassa má nálgast í afgreiðslu Bíó Paradísar frá kl.18:00 föstudaginn 18. september
  • Handhafar hátíðarpassa þurfa að leysa út miða á sýningar fyrirfram í miðasölu Bíó Paradís
  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar frá Bíó Paradís gilda ekki á þessar sýningar!

Skjaldborg á Facebook

Skjaldborg á Instagram