Tix.is

Um viðburðinn

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Senuþjófinn.

Í þessari guðdómlegu kómedíu bíður Leikari nokkur þess að Samuel Beckett skrifi fyrir sig nýtt leikrit. Hann styttir sér stundir með því að máta sig við persónur úr eldri leikritum skáldsins og bregður fyrir sig ögn af Dante, Artaud og Hallgrími Péturssyni. Einsog í sönnum grískum harmleik á Leikarinn von á sendiboða guðanna.

Leikari: Elfar Logi Hannesson
Sendiboði: Gyða Árnadóttir
Leikmynd og búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Hjörleifur Valsson
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Handrit og leikstjórn: Trausti Ólafsson