Tix.is

Um viðburðinn

Harpa hefur fengið undanþágu fyrir Þorláksmessutónleika Bubba og munu þeir því fara fram miðað við 500 manns í sóttvarnarhófli. 

Samkvæmt undanþágu frá reglugerð um sóttvarnir verða allir gestir fæddir 2015 og fyrr að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprofi, PCR prófi eða hafa meðferðis vottorð um fyrri sýkingu, athugið að vottorðið má ekki vera eldra en 180 daga gamalt og ekki yngra en 14 daga við komu á viðburði og á það við um þessa tónleika. Hraðpróf og PCR próf mega ekki vera eldri en 48 stunda gömul. Öll hraðpróf eru gjaldfrjáls. 

Grímuskylda er á tónleikunum og athugið að barsala á viðburðum er ekki heimil. Veitingastaðir í Hörpu (La Primavera og Hnoss) eru opnir í samræmi við sóttavarnarreglur og er þeim ekki heimilt að hleypa inn gestum eftir kl. 21:00

Tónleikarnir verða í beinu streymi en nánari upplýsingar um það má finna hér 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra.

Tón­leik­arn­ir eru merki­leg­ir fyr­ir þær sak­ir að þetta verður í 36. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir

36 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Bubba og mætir hann því tvíelfdur á svið Eldborgarsal Hörpu 23.desember 2021.

Þorláksmessu tónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum.

Nánar á bubbi.is eða samfélagsmiðlu Bubba Morthens.

Hlökkum til að sjá ykkur.