Tix.is

Um viðburðinn

Nú í haust hafa Vandræðaskáld verið starfandi í 5 ár og bjóða til barnaafmælis af því tilefni, enda engin betur til þess fallin að halda svoleiðis partý! Í afmælinu verður boðið upp á allt það besta úr fortíð og framtíð Vandræðaskálda, auk þess ætla þau að rýna í skuggahliðar sögu Akureyrar og rifja upp atriði úr Útför – sögu ambáttar og skattsvikara, en það var sýningin sem kom Vandræðaskáldum á kortið fyrir öllum þessum árum. Þetta verður sannarlega afmælisveisla, í öllum skilningi, og klárlega það barnaafmæli á árinu sem þú vilt alls ekki missa af!