Spennandi tónleikaþrenna í Flóa á Jazzhátíð Reykjavíkur fimmtudagskvöldið 3. september kl. 19:30 og 20:45. Einn miðapassi (6000 kr.) gildir á þrenna tónleikana.
Sigmar Matthíasson - METAPHOR í Flóa kl. 19:30
Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína fyrstu sóló plötu, Áróra, í september 2018 en hún hlaut tvennar tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í flokki jazz- og blústónlistar á síðasta ári. Nú er að hefjast undirbúningur fyrir aðra plötu, sem ber vinnuheitið METAPHOR, og er áætluð útgáfa í byrjun árs 2021. Hér er um að ræða nýtt frumsamið efni þar sem áhrif frá austrænni þjóðlagatónlist og annarri heimstónlist blandast við nútímajazz. Áður en haldið verður í hljóðver munu Sigmar og félagar prufukeyra nýja efnið á Jazzhátíð Reykjavíkur. Hér er um einstakt tækifæri að ræða þar sem heyra má nýja óútgefna tónlist í stöðugri mótun. Hljómsveitina skipa auk Sigmars á kontrabassa, þeir Haukur Gröndal á klarinett og saxófón, Ásgeir Ásgeirsson á oud, gítar og önnur strengjahljóðfæri, Ingi Bjarni Skúlason á píanó og Matthías Hemstock á trommur.
FLYTJENDUR:
Sigmar Þór Matthíasson: kontrabassi
Haukur Gröndal: klarinett, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson: oud, gítar, önnur strengjahljóðfæri
Ingi Bjarni Skúlason: píanó
Matthías Hemstock: trommur
Ingibjörg Elsa Turchi hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi síðustu ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar þvert á stíla og stefnur. Þar að auki kemur Ingibjörg reglulega fram undir eigin nafni þar sem hún kannar hljóðheim rafmagnsbassans, sem er hennar aðalhljóðfæri. Ingibjörg gaf út stuttskífuna Wood/Work árið 2017 þar sem bassinn var í aðalhlutverki. Á sumarmánuðum kemur út hennar fyrsta sólóplata í fullri lengd, Meliae , þar sem Ingibjörg heldur áfram að víkka út hljóðheim verkefnisins með hjálp hljómsveitar sinnar. Á plötunni ægir saman djassi, naumhyggju og tilraunatónlist í ómþýðri blöndu. Endurtekningar eru í fyrirrúmi. Saxófónn, gítar og bassi eru afbyggð með hjálp raftækja og síðan byggð upp aftur. Þannig skapa Ingibjörg og félagar einstakan og dáleiðandi hljóðheim þar sem hið kunnuglega verður framandi á ný.
FLYTJENDUR:
Ingibjörg Elsa Turchi: rafbassi
Tumi Árnason: tenórsaxófónn
Magnús Trygvason Eliassen: trommur
Hróðmar Sigurðsson: gítar
Magnús Jóhann Ragnarsson: píanó og rhodes
Umsagnir:
„Tónlistin sjálf er algerlega æðisleg . . . mínimalískur bassaleikur sem myndar taktviss stef og lykkjur. Hljóðið er unnið og nótum og skölum vafið haganlega saman . . . virkilega áhlýðilegt verk“
Arnar Eggert Thoroddssen, í dómi sínum um “Wood/work”
“Ingibjörg Turchi’s virtuosic ensemble played a set of warm, charming instrumental music that hovered between jazz, post-rock, formal composition and improvisation. It was free-flowing and hypnotic, from Ingibjörg’s finger-picked bass melodies, to Magnús Trygvason Eliassen´s startling and creative approach to percussion… to Tumi Árnason’s sparing and sometimes soaring saxophone passages.”
John Rogers, The Reykjavík Grapevine
“I did manage to move my way up to the front finally to watch Ingibjörg Turchi and her band create luscious, hypnotizing soundscapes defying the boundaries of genre and raising the bar on musicianship.”
Rex Beckett, The Reykjavik Grapevine
ASA Tríó ásamt saxafónleikaranum Jóel Pálssyni stígur á stokk og frumflytur glænýtt efni eftir alla fjóra meðlimi hljómsveitarinnar. Tónlistin samanstendur af verkum sem eru sérstaklega samin við þetta tilefni og eu þeir félagar á leið í hljóðver til að hljóðrita efniskránna til útgáfu í kjölfarið. ASA Tríó hefur verið starfrækt frá árinu 2005 og hefur gefið út tvo hljómdiska í eigin nafni auk þess að gefa út nokkrar hljómleikaútgáfur sem eru aðgengilegar á stafrænu formi á heimasíðu tríósins. Tríóið skipa þeir Andrés Þór gítarleikari, Agnar Már Magnússon orgelleikari og Scott McLemore trommuleikari, þeim til fulltingis verður saxafónleikarinn Jóel Pálsson sem ætti að vera tónlistaráhugafólki víðsvegar að góðu kunnur. Jóel hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi um árabil og gefið út fjölmarga hljómdiska sem hafa hlotið ótal viðurkenningar.
FLYTJENDUR:
Andrés Þór Gunnlaugsson: gítar
Agnar Már Magnússon: orgel
Scott McLemore: trommur
Jóel Pálsson: tenór sax