Tix.is

Um viðburðinn

SUNNEFA – HETJA, FÓRNARLAMB EÐA TÆFA? 

Sunnefa Jónsdóttir er tvívegis dæmd til drekkingar snemma á átjándu öld. Hún var sögð hafa eignast börn með yngri bróður sínum fyrst þegar hún var sextán ára og svo þegar hún var átján. Á Þingvöllum 1743 neitar hún sök og segir að faðir seinna barnsins sé enginn annar en sýslumaðurinn sem dæmdi hana. Hvernig dirfðist fátæk alþýðustúlka að rísa upp gegn yfirvaldinu? Hvað veitti henni slíkan kjark? 

Leikhópurinn Svipir setur upp kvennatvíleik þar sem leikkonurnar tvær kafa ofan í magnaða sögu Sunnefu. Þær sanka að sér heimildum, rannsaka og reyna að átta sig á hver þessi unga kona var sem lifði svo myrka tíma. Hvert var raunverulegt faðerni barna hennar? Hvað var í húfi þegar hulunni var svipt af sannleikanum? Hverjar voru þessar „ólánskonur“ sem létu lífið í drekkingarhyljum landsins og það oft fyrir litlar sakir? Leikkonurnar raða brotunum saman, kafa dýpra, setja sig í spor Sunnefu og smám saman lifnar saga hennar á sviðinu.

Leikkonur:     Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir
Leikmyndahöfundur:   Egill Ingibergsson
Teikningar:   Móeiður Helgadóttir
Búningar:     Beate Stormo
Lýsing:     Egill Ingibergsson
Tónlist og hljóðmynd: Margrét Kristín Sigurðardóttir
Blóðskammarþululag: Kristín Hrönn Waage, Margrét Kristín Sigurðardóttir og Tinna Sverrisdóttir
Sviðshreyfingar: Elín Signý Ragnarsdóttir og Aðalheiður Halldórsdóttir
Höfundur verks: Árni Friðriksson í samstarfi við leikhóp
Aðstoðarleikstjórn: Aðalheiður Halldórsdóttir
Leikstjórn:     Þór Tulinius
Framkvæmdastjórn:   Þór Tulinius

Verkið er stutt af:

Mennta- og menningamálaráðuneytið (Leiklistaráð), Mennta- og menningamálaráðuneytið (Starfslaun Sviðslistafólks), Uppbyggingarsjóður Austurlands, Fljótsdalshérað (MMF)

ATH! vegna takmarkaðs sætaframboðs áskilur Tjarnarbíó sér rétt til að færa gesti til í salnum eftir að miðar hafa verið keyptir til að hámarka sætanýtingu. Tjarnarbíó mun gera sitt besta til að halda slíku raski í lágmarki og reynir að rýra ekki upplifun gesta miðað við upphaflega keypta miða.