Tix.is

Um viðburðinn

Útskriftarsýning burlesknemenda Margrétar Maack fyllir og tryllir Þjóðleikhúskjallarann.
Ferskustu burleskmeyjar landsins sletta úr klaufunum eins og kýr að vori. Þú vilt geta sagt „Já, þessi stórstjarna – ég sá hana á hennar allra fyrstu sýningu!“

Fram koma:
Miss O'Nary, Not So Holy Mary, Ruby LaQueen, Júllala, Mrs. S, Lady Babalon, Nábrók, Sísí og fleiri. Sýningin er bönnuð innan 20 ára og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans.
Húsið er opnað kl. 19:30 og sýningin hefst kl. 20.