Salurinn og landslið píanóleikara á Íslandi fagna 250 ára afmæli Ludwigs van Beethoven með tónleikaröðinni Beethoven í 250 ár.
Beethoven samdi 32 píanósónötur sem spanna nær alla ævi hans eða árin 1795 – 1827. Nú hafa píanóleikarar á Íslandi tekið sig saman og sameinast um að flytja allar píanósónöturnar á 9 tónleikum í Salnum.
Efnisskrá:
Helgi Heidar Stefánsson Nr. 6 í F-dúr, op. 10 nr. 2
Thomas Higgerson Nr. 7 í D-dúr, op. 10 nr. 3
hlé
Valgerður Andrésdóttir Nr. 12 í As-dúr, op. 26
Anna Málfríður Sigurðardóttir Nr. 30 í E-dúr, op. 109
Um flytjendur:
Valgerður Andrésdóttir
lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún stundaði nám
við Tónlistarháskólann í Berlín þaðan sem hún lauk prófi árið 1992. Hún
bjó í Kaupmannahöfn í nokkur ár þar sem hún starfaði við kennslu og
píanóleik. Valgerður hélt sína fyrstu einleikstónleika 1990 og síðan þá
hefur hún haldið reglulega tónleika og spilað með ýmsum kammerhópum og
söngvurum. Hún hefur m.a. unnið með Caput hópnum og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Valgerður starfar nú við Tónlistarskólann í Hafnarfirði
Beethoven í 250 ár er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogs, Mennta- og menningarmálaráðuneyti – Tónlistarsjóði og Tónlistarfélagi Reykjavíkur.