Tix.is

Um viðburðinn

Loud and Proud segir allt sem segja þarf! Búrlesk hópurinn Túttífrútturnar efnir til óviðjafnanlegrar kvöldstundar á Gauknum í anda Pride þar sem flestöllum hinseginfánunum verður flaggað með taktföstum mjaðmahnykkjum. Kynnir kvöldsins er konungur hláturskastanna, Jono Duffy, og sérlegur sviðsgestur er boylesque stjarnan Saint Edgar.

Búrlesk er sviðslistaform sem einblínir á jákvæða líkamsímynd sem endurspeglast í gríni, dansi og almennum gleðilátum. Oft er því um hold og fullorðinshúmor um að ræða og sýningin ætluð 20 ára og eldri.

Upphitun í aðdraganda sýningarinnar, myndir og brot frá fyrri sýningum Túttífrúttanna má finna á https://www.instagram.com/tuttifrutturnar/

Miðaverð í forsölu: 2.200

Miðaverð við hurð: 2.900