Tix.is

Um viðburðinn

Hundur í óskilum heldur tónleika á Græna hattinum þann 14.ágúst nk. Hundurinn er latur og heldur sjaldan tónleika svo hér er tvímælalaust um stórviðburð að ræða. Á efnisskránni eru ýmis lög sem bæði eru sungin og leikin á hljóðfæri samtímis. Lögin eru í mörgum tóntegundum og textarnir fjalla um ýmis málefni. Sum eru eftir Hundinn önnur eftir aðra. Missið ekki af þessum sjaldgæfa viðburði.