Tix.is

Um viðburðinn

Dúndurfréttir hafa skapað sér nafn sem ein fremsta classic rock tribute hljómsveit landsins með flutningi sínum á tónlist Led Zeppelin, Pink Floyd, Deep Purple, Uriah Heep og fleiri hljómsveita sjöunda og áttunda áratugana. Þeir hafa legið í dvala undanfarna mánuði og farið stíft eftir tveggja metra reglunni. 

En sólin hækkar á lofti og með auknum sumarhita kemur rokkið aftur. Þeir ætla þess vegna að vera í Valaskjálf á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina á fimmtudagskvöldið 30.júlí og lofa tryllingslegri rokkstemmningu sem ætti að koma öllum í gríðarlegt stuð.