Tix.is

Um viðburðinn

Í fyrsta skipti á 18 ára ferli Hvanndalsbræðra slær hljómsveitin upp tónleikum í Skúlagarði í Kelduhverfi en það hefur lengi verið á stefnuskránni. Hljómsveitin er nýkomin úr hljóðveri með brakandi nýtt efni sem verður flutt í bland við alla helstu slagara sveitarinnar. Það verður sannkallað stuð, gleði og glens í Skúlagarði 1. Ágúst n.k.

Húsið opnar kl. 20:30 og tónleikar hefjast kl. 21.00