ATH. Allir sem sækja þessa tónleika þurfa að fara í hraðpróf út af Covid 19.
ALDAMÓTATÓNLEIKAR Á AKUREYRI
Fannst þér gaman að fara á
ball eða horfa á popptíví?
Langar þig að hverfa aftur
til síðustu aldamóta og upplifa svakalegustu nostalgíu ever?
Ef svarið er já við þessum
spurningum ertu stálheppin/n því 1. október ætlar landslið íslenskra poppara að troða upp á Akureyri, í Íþróttahöllinni.
Þau sem fram koma eru:
Birgitta Haukdal - Írafár
Jónsi - Í svörtum fötum
Magni - Á móti sól
Hreimur - Land & Synir
Gunni Óla - Skítamórall
Öll eiga þau það sameiginlegt
að hafa verið í hljómsveitum sem voru gríðarlega vinsælar og virkar í kringum síðustu aldarmót. Og gott betur en það, því sum af þessum böndum eru ennþá í fullu fjöri og allir söngvararnir eru enn starfandi sem tónlistarfólk.
Tónleikarnir verða tvískiptir,
fyrir hlé munu ballöðurnar og rólegu lögin verða flutt en eftir hlé verður allt gert vitlaust og talið í hverja sprengjuna á fætur annarri.
Hljómsveitarstjóri
verður hinn eini sanni Viggi úr Írafár og mun hann ásamt nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum landsins sjá til þess að allur flutningur verði upp á tíu.
20 ára aldurstakmark.
Þúúúúúú ég vil vera eins og
þú....
ARG Viðburðir
ATH - Það mun þurfa framvísa niðurstöðu úr hraðprófi fyrir þennan viðburð, hægt er að skrá sig hér: https://hradprof.covid.is/skraning/