Tix.is

Um viðburðinn

Kammersveitin Elja er skipuð ungu, íslensku tónlistarfólki sem hafa einbeitt sér að ferli sem einleikarar, hljómsveitaspilarar og við hljómsveitarstjórn. Elja hefur undanfarin ár skipað sér sess sem ein af fremstu kammersveitum landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Um tónsprotann heldur einn af stofnendum Elju, Bjarni Frímann Bjarnason.

Kammersveitin Elja heldur í fyrsta sinn í tónleikaferð um landið í sumar þar sem hún flytur fjölbreytta efnisskrá með sígildri og samtímatónlist þar sem meðal annars verður frumfluttur nýr harmonikkukonsert eftir Finn Karlsson. Einnig eru á efnisskránni verk eftir Caroline Shaw, Igor Stravinsky og Felix Mendelsohn.


Tónleikar ferðarinnar:

30. júlí kl. 20 - Menningarhúsið Miðgarður í Skagafirði
31. júlí og 1. ágúst - Tónleikar á vegum Berjadaga á Ólafsfirði, sjá nánar hér: www.berjadagar-artfest.com
2. ágúst kl. 20 - Félagsheimilið Mikligarður á Vopnafirði
4. ágúst kl. 20 - Kirkjuhvol á Kirkjubæjarklaustri
7. ágúst kl. 20 - Háteigskirkja í Reykjavík

Ath. Frítt fyrir 15 ára og yngri.


Efnisskrá tónleikanna:
Caroline Shaw - Entr’acte
Igor Stravinsky - Dumbarton Oaks
Finnur Karlsson - Harmonikkukonsert (frumflutningur)
Einleikari: Jónas Ásgeir Ásgeirsson

-Hlé-

Felix Mendelssohn - Sinfónía Nr. 4

www.eljaensemble.com

www.instagram.com/eljakammersveit

@eljakammersveit