Gítarleikarinn Reynir del Norte mun halda Flamenco tónleika hringinn í kringum landið dagana 2.-17. júlí.
Reynir er fæddur og uppalinn á Hvanneyri en hefur búið um árabil í Granada, Spáni þar sem hann vinnur sem Flamenco listamaður.
Hann hefur sett upp ótal tónleika hér á Íslandi og á Spáni með Flamenco hljómsveitum eða sem einleikari. Reynir er þekktur fyrir orkumikinn og tilfinningaríkan flutning í bland við skemmtilegar sögur og spjall á mili laga um líf hans í Andalúsíu.
Reynir del Norte gaf út sína fyrstu sólóplötu, El Reino de Granada, í desember 2019 sem jafnframt er fyrsta íslenska Flamenco hljómplatan. Platan inniheldur 8 tónsmíðar Reynis sem fluttar voru af honum sjálfum í samstarfi við nokkra af færustu Flamenco listamönnum Granada.
Lög plötunnar verða flutt á tónleikunum sem og nokkur þekkt íslensk dægur-og þjóðlög útsett af Reyni fyrir Flamenco gítar. Þema tónleika verður því Íslenskt Flamenco.
Einkunnir, Borgarnesi - 2. júlí kl 17 ATH miðasala einungis við hurð
Hótel Selfoss - 3. júlí kl 20:30
Hannesarholt - 4. júlí kl 20
Þórbergssetur - 7. júlí kl 21
Beituskúrinn, Neskaupsstað - 8. júlí kl 21
Skriðuklaustur - 9. júlí kl 17
Fjarðarborg, Borgarfirði-Eystri - 10. júlí kl 21
Kaupvangskaffi, Vopnafirði - 11. júlí kl 21
Gísli, Eiríkur, Helgi, Dalvík - 12. júlí kl 20:30
Minjasafnið á Akureyri - 13. júlí kl 16
Hvanneyri Pub - 17. júlí kl 21