Tix.is

Um viðburðinn

Hera fer í tónleikaferð um landið í tilefni af útgáfu nýrrar plötu og verður á Græna Hattinum fimmtudaginn 20 ágúst.

 

Hera Hjartardóttir sendir frá sér nýja plötu og ber titilinn ‘Hera’. Barði Jóhannson stýriði upptökum en þetta er tíunda breiðskífa Heru; sem hefur búið á Nýja Sjálandi i mörg ar, en er nú flutt heim til Íslands.

Platan inniheldur meðal annars lögin 'How does a lie taste?’ sem kom út í október og hefur fengið góða spilun í útvarpi hér á landi og ‘Process’ sem ná’i meðal annars fyrsta sætinu á vinsældarlista Rásar 2.

Þessi plata hefur verið í smíðum i rúm 3 ár og er tekin upp á Íslandi, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum og masteruð í Bretlandi. Þetta er fyrsta sóló plata Heru í rúm 8 ár og sú fyrsta sem kemur út á vynil.

Lögin eru mjög persónuleg og fjalla meðal annars um það að stoppa, hugsa og finna tengingu við náttúruna og núið.