Tix.is

Um viðburðinn

Verið velkomin í hugarflug. Í fuglabjarginu á eyjunni Skrúði er nefnilega margt sem gerist utan sjónsviðs mannanna. Í eyjuna flykkjast sjófuglar á vorin og allt lifnar við á meðan skarfurinn kvartar og kveinar. Á sumrin er ýmislegt um að vera, langvían þorir ekki að stökkva úr hreiðrinu og æðarfuglar dóla í flæðarmálinu. Á haustin fara farfuglar í hátíðlega skrúðgöngu til vetrarstöðva undir dynjandi súlukasti og á köldum vetrum hlæja haftyrðlar í snjónum og svo margt, margt fleira.

Fuglabjargið er áferðarfagurt tónleikhúsverk fyrir börn þar sem hljóðfæraleikarar og söngvarar verksins bregða sér í allra fugla líki. Í verkinu fylgjumst við með einu ári í eyjunni þar sem árstíðir koma og fara, hver á eftir annarri, og svo hring eftir hring eftir hring.

Fuglabjargið er nýtt, íslenskt barnaverk en textinn er eftir Birni Jón Sigurðsson, en hann hlaut Grímutilnefningu sem leikrit ársins 2020 ásamt leikhópnum CGFC fyrir verkið Kartöflur. Tónlist verksins er í höndum Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur sem nýlega var kosin bjartasta von íslensks tónlistarlífs í samtíma- og klassískri tónlist.

Verkefnið er styrkt af Sviðslistaráði, Starfslaunasjóði listamanna, Átaksverkefni atvinnuleikhópa, Barnamenningarsjóði, Tónlistarsjóði og Nordic Culture Point.

Samstarf við sviðslistahópinn Hin fræga önd.

Höfundur

Birnir Jón Sigurðsson

Leikstjórn

Hallveig Kristín Eiríksdóttir

Leikmynd

Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Birnir Jón Sigurðsson

Búningar

Sólveig Spilliaert

Lýsing

Jóhann Friðrik Ágústsson

Tónlist

Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir

Hljóðmynd

Ragnheiður Erla Björnsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson

Leikarar

Björg Brjánsdóttir, Björk Níelsdóttir, Bryndís Þórsdóttir, Halldór Eldjárn, Ragnar Pétur Jóhannesson, Tumi Árnason og Viktoría Sigurðardóttir