Tix.is

  • 19. des kl. 20:00
Um viðburðinn
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA: STREYMI ÁFRAM TIL SÖLU Á TIX TIL 11. JANÚAR

Takk kærlega fyrir frábæra skemmtun og yndislega jólastund á laugardaginn síðastliðinn. Vegna fjölda áskoranna hefur verið opnað aftur fyrir miðasölu fyrir streymi á Tix.is og verður sú sala opin til 11. janúar. Eftir að streymiskóður hefi verið virkjaður er hægt að horfa að vild í 48 klukkustundir. 

ATH: Viðburður í sölu á Tix þarf alltaf að hafa einhverja dagsetningu og þess vegna er dagsetning nú á viðburðinum “11. janúar”, en það er síðasti dagur til að kaupa streymismiða. 

---

VIÐ KOMUM MEÐ JÓLIN HEIM TIL ÞÍN 

Jólagestir láta ekki sitt eftir liggja á krefjandi tímum og hafa unnið hörðum höndum að því undanfarið að finna leiðir til að töfra fram sannan jólaanda í ár, eins og síðastliðin 13 ár. Það tókst og nú verður blásið til allsherjar jólaveislu á heimsvísu þar sem einvalið lið söngvara, hljóðfæraleikara, kóra og dansara koma fram, í beinni frá Borgaleikhúsinu. Nú geta allir keypt sæti á fremsta bekk og aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili.

Öll miðasala fer fram á Tix.is og kaupendur velja milli þriggja miðategunda, eftir því hvar þeir vilja horfa á tónleikana. Í boði er að horfa í myndlyklum Símans og Vodafone eða á streymi á Jólagestir.is. Kaupendur eru í raun og veru að kaupa kóða og hver kóði gildir eingöngu fyrir eitt kerfi, af þeim þremur sem eru í boði. 

Ekkert verður til sparað frekar en fyrri daginn til að gera upplifunina einstaka og ógleymanlega. Umgjörðin verður engu lík og að sjálfsögðu verða heimsklassagæði á útsendingu, mynd- og hljóðvinnslu.

Ásamt Björgvini kemur fram stórskotalið söngvara:

  • Ágústa Eva
  • Eyþór Ingi
  • Bríet
  • Gissur Páll
  • Högni
  • Logi Pedro
  • Margrét Eir
  • Svala
  • Sérstakir gestir: Herra Hnetusmjör og Laddi

Einnig koma fram allar Jólastjörnur fyrri ára og sigurvegarinn úr Jólalagakeppni Rásar 2 flytur sigurlagið á tónleikunum. Þau verða dyggilega studd af Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar, Karlakórnum Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarssonar, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og dönsurum úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.

Jólagestir Björgvins eru orðin ómissandi hefð eftir sigurgöngu síðustu 13 ár og okkur finnst það ótrúlega spennandi tilhugsun að geta í ár veitt öllum Íslendingum jafnan aðgang að metnaðarfyllstu tónleikum landsins, óháð búsetu.

Sameinumst í desember í stærstu jólaveislu allra tíma, heima í stofunni, um allan heim, með kakóbolla eða veglegt jólaglögg við hönd.

HANDRIT: BJÖRN G. BJÖRNSSON
STJÓRN ÚTSENDINGU: ÞÓR FREYSSON
LEIKSTJÓRN: GUNNAR HELGASON

Svör við algengum spurningum hér.

Umsjón: Sena Live


Kauptu nýju jólaplötu Björgvins Halldórssonar 'Ég kem með jólin til þín': bjorgvinhalldors.lnk.to/JolinForsala