Tix.is

Um viðburðinn

Í ljósi herta samkomutakmarkana vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands þurft að aflýsa tónleikunum.

Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljóma glæsileg rússnesk og íslensk meistaraverk undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar en hann hefur vakið mikla og verðskuldaða hrifningu tónleikagesta.

Rannveig Marta Sarc hóf fiðlunám fjögurra ára gömul og hefur nýlokið meistaranámi við Juilliard-listaháskólann í New York. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábæran leik og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, meðal annars frá Rótarý á Íslandi. Hún á heldur ekki langt að sækja tónlistargáfurnar, því móðir hennar er Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hér leikur Rannveig hinn glæsilega fiðlukonsert nr. 2 eftir Prokofíev, þar sem lagrænir hæfileikar fiðlunnar njóta sín til fulls.

Anna Þorvaldsdóttir er í hópi virtustu samtímatónskálda og semur fyrir frægustu hljómsveitir og tónlistarhátíðir heims. Nýtt verk hennar sem hér hljómar er pantað í sameiningu af Fílharmóníusveitunum í Berlín og New York, Sinfóníuhljómsveitinni í Birmingham og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Það verður frumflutt í Berlín í febrúar 2021 og því gefst hér einstakt tækifæri til að heyra það allra nýjasta frá einu áhugaverðasta tónskáldi Íslands um þessar mundir.

Tónleikunum lýkur á einu af meistaraverkum Tsjajkovskíjs, fimmtu sinfóníunni, sem hann samdi á hátindi ferils síns, skömmu áður en hann hófst handa við ballettinn um Þyrnirós. Verkið hefur hrifið hlustendur allt frá fyrsta degi. Jafnvel Johannes Brahms, sem lét sér annars fátt um finnast þegar kom að tónlist Tsjajkovskíjs, heyrði tónskáldið stjórna sinfóníunni í Hamborg árið 1889 og gat ekki annað en játað að hún væri framúrskarandi tónsmíð.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 200 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum í Eldborg. Í það minnsta eitt autt sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda að vera með grímu á tónleikunum. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.

EFNISSKRÁ
Anna Þorvaldsdóttir: Catamorphosis
Sergej Prokofíev: Fiðlukonsert nr. 2
Pjotr Tsjajkovskíj: Sinfónía nr. 5

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bjarni Frímann Bjarnason

EINLEIKARI
Rannveig Marta Sarc

Nánar um tónleikana á vef hljómsveitarinnar.