Af fingrum fram í Salnum:
Jónas Sigurðsson troðfyllti Salinn tvisvar sinnum síðasta vetur og fór á kostum í spjalli og spileríi.
Hann er ekki lengur "rangur maður á röngum tíma í vitlausu húsi" heldur hafa Íslendingar tekið þennan geðþekka Þorlákshafnarpilt upp á arma sína og haldið honum fast allar götur síðan.