Tix.is

Um viðburðinn

DIMMA á Hard Rock

DIMMA verður með alvöru Þjóðhátíðar tónleika 16. júní í Hard Rock kjallaranum, þar sem þeir hafa áður spilað marga af sínum bestu tónleikum.

DIMMU þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarin ár og hafa þeir gefið út fimm breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem farið hafa hátt á öldum ljósvakans.

Í lok síðasta árs sendi sveitin frá sér fyrsta lagið með nýrri liðskipan en það var lagið „Þögn“ sem notið hefur talsverðra vinsælda.
Þeir fylgdu því svo eftir með laginu „Almyrkvi“, sem var framlag DIMMU til Söngvakeppninnar 2020.
Þessi lög verða að sjálfsögðu leikin á tónleikunum ásamt úrvali af eldri perlum sveitarinnar og því ætti enginn að láta sig vanta á tónleika DIMMU á Hard Rock.

DIMMA:
Stefán Jakobsson : Söngur
Ingó Geirdal : Gítar
Silli Geirdal : Bassi
Egill Örn Rafnsson : Trommur