Tix.is

Um viðburðinn

ARG viðburðir kynna með stolti, KK & MUGISON á Hótel KEA.

Nú þegar hinar heftandi hömlur samkomubannsins eru loksins orðnar slakari er hægt að halda litla viðburði og því kjörið að skella sér á tónleika með þeim KK og Mugison

Aldrei áður hafa þeir tveir snúið bökum saman og spilað með hvorum öðrum, einir og óstuddir...

Hér er því um að ræða algjörlega einstakt tækifæri til að sjá þessa tvo tónlistarmenn saman á litlum og persónulegum tónleikum.

Ekki þarf að fjölyrða um sigra KK og Mugison enda hafa þeir báðir átt stórglæsilega sólóferla ásamt því að hafa unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert einasta mannsbarn þekkir.

ATH 
 - Vegna gildandi fjöldatakmarkana á tónleikadegi (200 manns) verða aðeins 150 miðar í boði. Fyrstur kemur, fyrstur fær.