Tix.is

Um viðburðinn

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.

Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp fjölskyldusöngleik byggðan á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.

Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, taka með sér teppi, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.

Leikhópurinn Lotta fylgir að sjálfsögðu öllum tilmælum sóttvarnalæknis. Við höfum því sett saman leikáætlun fyrir næstu sýningar af Bakkabræðrum.

Við getum gert þetta öll saman!


-Hámark 100 manns sem eru eldri en 15 ára á hverri sýningu.
-Miðar seldir fyrirfram á tix.is til að lágmarka snertingu https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10035/
-Hægt að greiða snertilaust í Lottukerrunni.
-Höldum 2ja metra fjarlægð á milli allra fjölskyldna.
-Höfum stækkað hljóðkerfið okkar svo allir heyri þrátt fyrir dreifðara áhorfendasvæði.
-Bjóðum upp á myndatöku úr hæfilegri fjarlægð en geymum knúsin í ár.
-Erum með spritt fyrir alla.
-Hvetjum fólk til að koma með sitt eigið teppi.
-Engin nauðsyn að fá límmiða, þannig fækkum við snertiflötum.
-Mæta tímanlega svo vel gangi að skipuleggja svæðið.

Með þessu móti er hægt að fara í snertilaust leikhús úti undir beru lofti, virða fjöldatakmörk og halda fjarlægð við náungann.

Hlökkum til að sjá ykkur!

BAKKABRÆÐUR

Leikstjórn: Þórunn Lárusdóttir

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Viktoría Sigurðardóttir / Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.

Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson.

Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson
Hljóðhönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Búningahönnun: Kristína R. Berman

Danshöfundur: Viktoría Sigurðardóttir

Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson

Leikmunir: hópurinn