Tix.is

Borgarleikhús

Um viðburðinn

Frumsýnt 21. sept

Í lokasenu Dúkkuheimilis, byltingarkenndu verki Ibsens frá 1879, tekur Nóra Helmer þá ögrandi ákvörðun að fara frá eiginmanni sínum og börnum og hefja nýtt líf án þeirra. Þessi hápunktur verksins – þegar Nóra skellir aftur hurðinni á það líf sem hún hefur fram að því lifað – þeytti evrópsku leikhúsi og samfélagsumræðu inn í nútímann. Í Dúkkuheimili, 2. hluta, hefur þó nokkur tími liðið frá brottför Nóru. Núna er bankað á þessar sömu dyr - Nóra er snúin aftur. Hvers vegna? Hvaða áhrif mun það hafa á þau sem hún skildi eftir? Hverjar verða afleiðingarnar? Hvar hefur hún verið?

 Leikritið er hnyttin rannsókn á samskiptum, hlutverkum kynjanna og ólíkum hugmyndum um ástina, hjónabandið og skuldbindingar. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Hilmir Snær Guðnason leika aðalhlutverkin eins og í Dúkkuheimili Ibsens sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu ekki alls fyrir löngu. 

Dúkkuheimili, 2. hluti, var tilnefnt til 8 Tony-verðlauna árið 2017, meðal annars sem besta leikritið. 

Listrænir stjórnendur:

Höfundur: Lucas Hnath

Þýðing: Salka Guðmundsdóttir

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Stefanía Adolfsdóttir

Lýsing:  Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Una Sveinbjarnardóttir

Danshöfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen

 

Leikarar: Ebba Katrín Finnsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir.