Tix.is

Borgarleikhús

Um viðburðinn

Skúmaskot Frumsýnt í janúar 2018

Þessi furðulegi dagur byrjar á beljubúningi og dósaslysi í lífrænni baunabúð en endar á lífshættu í iðrum jarðar.

Eftir örlagaríkt rifrildi við Völu stóru systur ákveður Rúna að elta dularfullt skilti sem lofar friði frá óþolandi ættingjum og lífi eftir eigin höfði. Fyrr en varir er hún búin að líma á sig yfirskegg og komin inn í skröltandi lyftu ásamt ókunnugri konu – niðri í Skúmaskotum bíður systranna ævintýri og þar er ekki allt sem sýnist.

Rúna verður viðskila við Völu og nú þarf hún að standa sig ein og óstudd í ógnvænlegum undirheimum þar sem undarleg trédýr sækja að henni og hættuleg skúmaskot leynast við hvert fótmál.

Skúmaskot er spennandi og bráðfyndið leikrit fyrir krakka á öllum aldri. Þrátt fyrir lífleg efnistök fjallar verkið undir niðri um óttann við hið óþekkta og einangrandi áhrif kvíða og vanlíðunar.

Salka Guðmundsdóttir er eitt öflugasta og athyglisverðasta leikskáld okkar af yngri kynslóð. Hún var leikskáld Borgarleikhússins á síðasta leikári og skrifaði Skúmaskot sérstaklega fyrir húsið.