Tix.is

Borgarleikhús

Um viðburðinn

Sýningar hefjast 6. apríl

Leikhópur í Borgarleikhúsinu setur upp morðgátu við nokkuð frumstæðar aðstæður en sýningin á að vera nokkurs konar „break-through“ fyrir hópinn. Ekki byrjar það vel því fljótlega fer allt úrskeiðis; leikmyndin virkar ekki sem skyldi, hurðir opnast ekki, leikmunavörðurinn hefur ekki staðið sig í að koma fyrir hlutum á réttum stöðum og leikararnir kunna ekki almennilega textann sinn. Úr þessu verður sprenghlægileg atburðarás þar sem allt klikkar sem klikkað getur og rúmlega það - á meðan leikararnir streða við að koma til skila hinu hádramatíska morðgátuleikriti. 

Verkið fékk Olivier-verðlaunin sem besti gamanleikurinn í Bretlandi 2015 og hefur gengið fyrir fullu húsi síðan það var frumsýnt árið 2014. 

Listrænir stjórnendur:

Höfundar: Henry Lewis, Jonathan Sayer, Henry Shields

Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson

Leikstjórn: Halldóra Geirharðsdóttir

Leikmynd og búningar: Helga I. Stefánsdóttir

Lýsing:  Páll Ragnarsson

Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir

Hljóð: Garðar Borgþórsson

 

Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Birna Rún Eiríksdóttir, Davíð Þór Katrínarson, Halldór Gylfason, Hjörtur Jóhann Jónsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir.