Steina og Woody Vasulka eru frumkvöðlar í vídeólist. Þau hafa haft ótvíræð áhrif á þróun seinni endurreisnar tímabilsins í listum en núna eru þau í fjárkröggum og vita ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Fyrir tilviljun eru þau enduruppgötvuð af listaheiminum sem þau töldu sig aldrei hluta af og skjótast aftur upp á stjörnuhimininn.
Áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar 2019 - en myndin var einnig sýnd á hinni virtu hátíð Nordisk Panorama.
VASULKA ÁHRIFIN - glæný íslensk heimildamynd - frumsýnd 1. nóvember með íslenskum texta í Bíó Paradís!
Leikstjóri: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Framleiðandi: Margrét Jónasdóttir
Hljóðupptaka: Árni Benediktsson
Kvikmyndataka: Arnar Þórisson
Frumsamin tónlist: Hugar