Þeir Lucas, Scorsese og Coppola komu átrúnaðargoði sínu Akira Kurosawa til hjálpar við gerð Kagemusha ('80) . Myndin segir frá bragðaref sem fær að halda lífi gegn því að taka að sér hlutverk nýlátins stríðsherra, tvífara síns. Kraftmikið myndmál, þungt og dramatískt undirspil.
Ekki missa af Kagemusha á Svörtum Sunnudegi 2. febrúar kl 20:00!