Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af ógleymanlegri bíóupplifun með SLAYER í þessari einstöku samsetningu af stuttmynd og tónleikum ásamt sérstöku aukaefni í frábærum hljóð-/myndgæðum miðvikudaginn 6. nóvember kl.19:30 í Bíó Paradís – EINGÖNGU ÞETTA EINA KVÖLD!!!

Hljómsveitin Slayer er fyrir löngu komin á lista yfir eina mestu "thrash-metal" hljómsveit sögunnar - en böndin sem oftast eru kallaðar Risarnir fjórir innan þessarar tónlistarstefnu og hafa haft mest áhrif eru Slayer ásamt Metallica, Megadeth og Anthrax. Nú getur ÞÚ upplifað bæði heimsfrumsýningu á stuttmyndinni "SLAYER: The Repentless Killogy" sem aðdáendur hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu ásamt sérstöku aukaefni frá hljómsveitarmeðlimum og stórfenglegum tónleikum bandsins sem teknir voru upp í Los Angeles Forum tónleikahöllinni.

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessa sérsýningu!