Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Þar sem vegurinn endar lengst norður á Ströndum stendur bærinn Krossnes. Þar hefur fjárbúskapur verið stundaður kynslóð fram af kynslóð í hundruð ára. Úlfar bóndi er jafn mikill hluti af landslaginu eins og Krossnesfjallið sjálft. Þetta er síðasta haustið sem hann og Oddný kona hans smala fé sínu í réttir og þar með endar búskapur í Krossnesi á Ströndum. Enn eimir eftir af gamla Íslandi en síðustu bændurnir sem stunda búskaparhætti að gömlum sið munu brátt heyra sögunni til.

SÍÐASTA HAUSTIÐ - glæný íslensk heimildamynd - frumsýnd 7. október með enskum texta í Bíó Paradís!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessar sýningar!