Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Javed er breskur táningur af pakistönskum ættum sem er fæddur og uppalinn í Luton í Bretlandi. Hann dundar sér við að semja ljóð og þegar hann uppgötvar lög og texta Bruce Springsteen finnur hann svo mikinn samhljóm með þeim og sínu eigin lífi í Luton að hann einsetur sér að heimsækja heimabæ Bruce í New Jersey, þvert á vilja foreldra sinna.

Frumsýnd 13. september í Bíó Paradís - með íslenskum texta!