Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Verjandi og sækjandi hafa lagt málið í dóm og kviðdómur ræður nú ráðum sínum inni í herbergi til að ákveða hvort að ungur spænsk-amerískur maður er sekur eða saklaus af því að hafa myrt föður sinn. Það sem byrjar sem morðmál snýst fljótlega upp í drama inni í herbergi kviðdómsins, um fordóma hvers dómara og fyrirfram mótaðar hugmyndir um réttarhaldið, hinn ákærða, og hvern annan. Myndin er byggð á leikriti, og fer alfarið fram í herbergi kviðdómenda.

Ekki missa af einstakri bíóupplifun af 12 ANGRY MEN á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 24. nóvember kl.20:00 í Bíó Paradís!