Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Í hátæknilegri framtíð árið 2019, er Los Angeles orðin dimm og drungaleg stórborg, og mannkynið má muna sinn fífil fegurri. Rick Deckard er fyrrum lögga og hausaveiðiri sem hefur það verkefni með höndum að drepa eftirmyndir, en það eru klón af mönnum sem látin eru vinna í nýlendum utan Jarðarinnar. Þegar fjórar eftirmyndir gera blóðuga uppreisn, þá er Deckard kallaður til starfa, þó hann sé sestur í helgan stein. Hann eltir þessi vélmenni og drepur þau eitt af öðru, en hittir á ferð sinni eina eftirmynd, Rachel, sem hefur þróað með sér mannlegar tilfinningar, þó svo hún sé bara vélmenni. Eftir því sem Deckard nálgast foringja uppreisnarinnar, þá veldur einlægt hatur hans á gervigreind því að hann fer að efast um sjálfan sig í þessum framtíðarheimi, hvað er mennskt og hvað ekki.

Ekki missa af einstakri bíóupplifun af BLADE RUNNER: THE FINAL CUT á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 3. nóvember kl.20:00 í Bíó Paradís!