Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af hrollvekjandi bíóupplifun af DRAG ME TO HELL sem upphitun fyrir Hrekkjavökuna á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 27. október kl.20:00 í Bíó Paradís!

Segir myndin frá hinni ungu Christine Brown (Alison Lohman), sem er á hraðri uppleið í bankanum sínum. Hún vinnur sem lánafulltrúi og á von á stöðuhækkun í bráð. Lífið er gott þar til gömul kona, frú Ganush (Lorna River) kemur í bankann og biður um lán. Til að skemma ekki möguleika sína á stöðuhækkun hafnar Christine lánabeiðninni, en það veldur því að Ganush missir heimili sitt. Í hefndarskyni leggur hin dularfulla, gamla kona á hana Lamia-bölvunina. Christine hefur litla trú á áhrifagildi bölvunarinnar í fyrstu, en fljótlega snýst líf hennar upp í helvíti á jörðu. Hún er hundelt af illum anda og leitar aðstoðar miðils til að forðast eilíft líf í helvíti. En hversu langt mun hún þurfa að ganga til að losna undan bölvuninni?