Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af 20 ára afmælisfagnaði THE MATRIX á svakalegri Föstudagspartísýningu 18. október kl.20:00 - eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Myndin gerist einhvern tíma í framtíðinni og við kynnumst Thomas A. Anderson (Keanu Reeves). Thomas lifir tvöföldu lífi, á daginn er hann tölvuforritari hjá hugbúnaðarfyrirtæki, en á kvöldin er hann hakkarinn Neo. Venjubundið líf hans breytist þó snögglega þegar Morpheus (Laurence Fishburne), frægur hakkari hefur samband við hann og hann er allt í einu orðinn eftirlýstur af yfirvöldum. Neo veit ekki hvort hann eigi að gefa sig fram eða hlýða skipunum Morpheusar. Hverjir eru hinir svartklæddu menn sem vilja ná tali af honum og hvað er þetta umtalaða Matrix sem Neo hefur heyrt af.

Vísindaskáldskapur af bestu gerðinni, þar sem framsæknar tæknibrellur ráða ríkjum, kvikmynd sem hefur haft áhrif æ síðan og sannkölluð költ klassík. Hasarmynd með þeim Keanu Reeves, Laurence Fishburne og Carrie-Anne Moss í aðalhlutverkum. Myndin vann til fernra Óskarsverðlauna á sínum tíma.