Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af einstakri mynd hins goðsagnakennda leikstjóra Akira Kurosawa - upplifðu DREAMS á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 8. september kl.20:00 í Bíó Paradís - sýnd með enskum texta!

Þessi hugmyndaríka japanska framleiðsla kynnir röð stuttmynda eftir hinn marglofaða leikstjóra Akira Kurosawa ("The Seven Samurai", "Ran"), sem færir okkur 28. mynd sína og mögulega þá allra persónulegustu. Í einni sögunni njósnar ungur drengur um refi sem halda brúðkaupsathöfn; eftirfarandi kafli fylgist með öðru ungmenni sem verður vitni að töfrandi augnabliki í aldingarði einum. Í stuttmyndinni "Crows“ stígur upprennandi listamaður inn í heim málverksins og kynnist Vincent van Gogh, sem leikinn er af engum öðrum en leikstjóranum Martin Scorsese. Margar af stuttmyndunum í þessari frumlegu kvikmynd tengjast náið í gegnum umhverfisþema.