Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI - EINGÖNGU Í BÍÓ PARADÍS 7.-11. ÁGÚST!
ATH! Bara sýnd með enskum texta.

Í kjölfar hins sögulega tónleikaferðalags "Love Yourself", þá snýr hljómsveitin BTS aftur á hvíta tjaldið í myndinni BRING THE SOUL: THE MOVIE. Nú mun bandið sem skín skærar en nokkurt ljós á sviðinu bjóða áhorfendum að skyggnast á bak við tjöldin.

Á þaki einu í París deginum eftir lokatónleikana í Evrópuferðinni segja BTS sínar eigin reynslusögur frá upplifun nýrra borga og hvernig það er að troða upp fyrir framan þúsundir af hörðum aðdáendahóp þeirra sem kallar sig ARMY um allan heiminn. Við skyggnumst inní heim BTS sem gerist utan sviðsins, með nánum hópumræðum krydduðum með stórkostlegum tónleikabrotum frá heimstúrnum, þetta er svo sannarlega bíóviðburður sem ekki má missa af.

Ferðalag BTS heldur áfram!