Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af hinni dýrvitlausu og stórskemmtilegu grínmynd ACE VENTURA: PET DETECTIVE á geggjaðri Föstudagspartísýningu 26. júlí kl.20:00! Eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Sjúklega fyndin grínmynd með grínistanum Jim Carrey sem fer algjörlega á kostum sem hinn aulalegi gæludýraspæjari Ace Ventura sem sérhæfir sig að hafa uppá týndum gæludýrum. Þegar höfrungurinn Snowflake sem er lukkudýr Miami Dolphins ruðningsliðsins hverfur skyndilega fer Ace í málið með kostulegri atburðarás og afleiðingum!

Myndin heldur einnig uppá 25 ára útgáfuafmæli í ár sitt eins og Dumb and Dumber - svo 1994 var algjört metár hjá Jim Carrey og kom honum rækilega á grínkortið :-)