Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af MY BEST FRIEND'S WEDDING á geggjaðri Föstudagspartísýningu 28. júní kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Frábær upphitun fyrir brúðkaupstímabil sumarsins frá sama leikstjóra og færði okkur hina geysivinsælu Muriel’s Wedding, kemur önnur stórskemmtileg rómantísk grínmynd með Julia Roberts og Cameron Diaz. Hin 28 ára gamla Julianne verður ástfangin af besta vini sínum þegar hann tilkynnir trúlofun sína. Nú eru góð ráð dýr og Julianne gerir allt til að vinna hjarta brúðgumans áður en það verður um seinan.