Tix.is

Bíó Paradís

  • Forsýning 15. maí kl.20:00
  • Frumsýnd 17. maí
Um viðburðinn

Sagan af ekta norskri black-metal tónlist og alræmdustu frumkvöðlum þeirrar tónlistarstefnu: hópi ungra manna með einstaka hæfileika í kynningarmálum, kirkjubrennum og morðum - þ.e.a.s. bandið MAYHEM!

Oslo, 1987. Hinn sautján ára gamli Euronymous (Rory Culkin) er staðráðinn í að flýja friðsælan skandinavískan heimabæ sinn til að geta einbeitt sér að því að búa til "ekta norska black-metal tónlist" með hljómsveitinni sinni MAYHEM. Dead (Jack Kilmer) og Varg (Emory Cohen) slást í lið með honum, en þeir eru jafn ástríðufullir rokkhundar og Euronymous sjálfur er. Trúandi því að þeir séu á barmi nýrrar tónlistarbyltingar, verður drifkraftur hópsins enn myrkari en áður í anda black-metal hugmyndafræðinnar um útbreiðslu illsku. Bandið byrjar að brenna niður kirkjur um allt landið og stela legsteinum fyrir þeirra eigin plötubúð. En þegar fjölmiðlarnir komast á sporið af þeim tekur Euronymous meiri heiður en raun ber vitni fyrir ofbeldisverk hópsins, Varg sem er nýsloppinn úr fangelsi og er ósáttur við málið skipuleggur skuggalegan hitting, bæði til þess að leysa úr málunum og eins afgera hver myrkasti black-metal tónlistarmaður í raun og veru er...

Mögnuð mynd sem leikstýrt er af hinum fjölhæfa Jonas Åkerlund sem var stofnandi og upprunalegi trommari sænska black-metal bandsins Bathory, sem voru með í því að ryðja brautina fyrir þessa tónlistarstefnu, en bandið Mayhem sótti meðal annars innblástur sinn til þessara frumkvöðla. Þar fyrir utan hefur Jonas komið að margvíslegum verkefnum sem mörg hver eru tónlistartengd, en hann hefur leikstýrt fjölda tónlistarmyndbanda og þar á meðal fyrir lagið "Óveður" eftir Sigur Rós sem tekið var upp hérlendis í Grindavík og skartar Ernu Ómarsdóttur dansara/danshöfundi í aðalhlutverki. Ekki löngu eftir það tónlistarmyndband leitaði Jonas til Sigur Rós er hann vantaði tónlist fyrir Lords of Chaos, en þá var hann þegar búinn að setja inn tónlist hljómsveitarinnar sem hentaði vel sem tilfinningaþrungin hljóðrás myndarinnar, á endanum var notast við músík af öllum plötum Sigur Rósar í samráði við hljómsveitarmeðlimina.