Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af hinni drepfyndnu A NIGHT AT THE ROXBURY á geggjaðri Föstudagspartísýningu 31. maí kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Tveir aulalegir bræður, Steve og Doug Butabi, eiga sér þann draum heitastan að stofna sinn eigin skemmtistað, þrátt fyrir að komast ekki sjálfir inn á Roxbury klúbbinn sem er heitasti staðurinn í bænum. Ofurfyrirsætan og "gullgrafarinn" Vivica og vinkona hennar Cambi reyna að svindla peninga út úr bræðrunum, en það er til lítils þegar þær komast að því að þeir eiga ekki bót fyrir borunni á sér.

Margir bandarískir gamanleikarar hafa byrjað frægðarferil sinn á því að koma fram í sjónvarpsþættinum "Saturday Night Live" sem gengið hefur í fleiri áratugi. Þátturinn hefur m.a. verið stökkpallur kappa á borð við Steve Martin, Robin Williams og Eddie Murphy inn í kvikmyndabransann. Í Roxbury-klúbbnum fá þeir Will Ferrell og Chris Kattan, sem eru fastagestir í þættinum góða, tækifæri til að spreyta sig á hvíta tjaldinu.