Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af THE DEVIL WEARS PRADA á æðislegri Föstudagspartísýningu 10. maí kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Ef tíska er trú, yrði Runway Biblían - og ritstjóri tískutímaritsins Miranda Priestly (Meryl Streep) væri hinn ógnvekjandi guð. Hin unga og óreynda Andy (Anne Hathaway) sem er nýútskrifuð úr blaðamannaskóla og dreymir um starfsferil í blaðamennsku, landar skyndilega starfi sem persónulegur aðstoðarmaður hinnar valdamiklu og miskunnarlausu Miranda. Þrátt fyrir að starfið geti opnað ótal dyr er Andy þá virkilega tilbúin að selja sál sína tískudjöflinum??? Stórskemmtileg mynd sem sló rækilega í gegn og er byggð á metsölubók Lauren Weisberger um að listina við að vera tík og stinga aðra í bakið, húmorinn er beinskeittur og fjörugur í anda Sex And The City.