Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af THERE'S SOMETHING ABOUT MARY á geggjaðri Föstudagspartísýningu 3. maí kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Frá leikstjórum og höfundum Dumb & Dumber og Kingpin kemur ein fyndnasta mynd allra tíma! Draumadeit Teds með hinni fögru Mary í menntaskóla varð aldrei að neinu þar sem hann lenti í afskaplega vandræðalegu slysi. Mörgum árum síðar ræður Ted einkaspæjarann Pat Healy til að finna Mary svo hann geti hitt hana aftur með ófyrirsjáanlegum, en mjög fyndnum og furðu rómantískum afleiðingum.