Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af COYOTE UGLY á geggjaðri Föstudagspartísýningu 26. apríl kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Violet Sanford er smábæjarstelpa sem dreymir um að verða lagahöfundur og til að ná endum saman vinnur hún sem dansandi barstelpa á skvísubarnum Coyote Ugly í New York. Það verður aldeilis stjörnufans þegar Tyra Banks, Piper Perabo, Maria Bello, Johnny Knoxville, John Goodman, Adam Garcia og LeAnn Rimes príða stóra tjaldið í Bíó Paradís - þessu viltu EKKI missa af!