Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af funheitum Tom Cruise í COCKTAIL á geggjaðri Föstudagspartísýningu 12. apríl kl.20:00, eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Þegar hinn ungi barþjónn Brian (Tom Cruise) hittir Doug sem er töfrandi og kaldhæðinn barþjónn sem er hokinn af reynslu í bransanum, takast með þeim vinabönd og tekur sá eldri hinn yngri í læri. Þetta kynþokkafulla ofurteymi og svakalegir taktar þeirra með kokteilhristarana á bakvið barborðið skapar þeim fljótt góðan orðstír í New York borg þar sem frægð, frami og peningar flæða um.