Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Ekki missa af geggjaðri SING-ALONG Partísýningu á BOHEMIAN RHAPSODY föstudaginn 5. júlí kl 20:00!!! Athugið að myndin verður sýnd án íslensks texta, en enskur texti birtist með lögunum og við hvetjum alla gesti til að mæta og syngja með uppáhalds Queen lögunum!
P.S. Barinn/sjoppan verður stútfull af sætindum og partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!

Breska hljómsveitin Queen var stofnuð árið 1970 og átti eftir að afla sér heimsfrægðar á næstu fimmtán árum með lögum sem eru fyrir löngu orðin sígild og allir þekkja. Í Bohemian Rhapsody er farið yfir feril sveitarinnar allt frá byrjun, með sérstakri áherslu á hlut píanóleikarans, laga- og textahöfundarins og eins besta söngvara allra tíma, Freddies Mercury, sem lést langt um aldur fram árið 1991, aðeins 45 ára að aldri. Hápunktur myndarinnar er síðan Live Aid-tónleikarnir í júlí 1985 en frammistaða Queen á þeim hefur síðan margoft verið valin og nefnd besta tónleikaframmistaða rokksveitar fyrr og síðar og allir þekkja. Í Bohemian Rhapsody er farið yfir feril sveitarinnar allt frá byrjun, með sérstakri áherslu á hlut píanóleikarans, laga- og textahöfundarins og eins besta söngvara allra tíma, Freddies Mercury, sem lést langt um aldur fram árið 1991, aðeins 45 ára að aldri. Hápunktur myndarinnar er síðan Live Aid-tónleikarnir í júlí 1985 en frammistaða Queen á þeim hefur síðan margoft verið valin og nefnd besta tónleikaframmistaða rokksveitar fyrr og síðar.