Skip to content

Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Vertu í fremsta sæti hjá Breska Þjóðleikhúsinu - á splunkunýrri uppfærslu á einu ástsælasta verki rithöfundarins William Shakespeare Julius Caesar, eitt af mörgum verka hans sem gerast á tímum Rómarveldisins.

Caesar mætir sigri fagnandi til Rómar og fólkið þeysist út af heimilum sínum út á götur borgarinnar til að taka þátt í hátíðarhöldunum. Gríðarlegar vinsældir Caesar valda miklum óróa hjá menntaelítunni sem leggur á ráðin um að steypa honum af valdastóli. Í kjölfar morðsins á honum brýst út borgarastyrjöld á götum höfuðborgarinnar Róm.

Hinn margverðlaunaði leikstjóri Nicholas Hytner þrýstir áhorfendum beint inní götuveisluna til að hylla endurkomu Casar, þingið sem verður vitni að morðinu hans, múginn sem kemur saman fyrir jarðarförina og ringulreiðina sem brýst út í kjölfarið.

Sýningar:

  • Mánudagur 11. mars kl 20:00
  • Miðvikudagur 13. mars kl 20:00
  • Athugið að árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessar sýningar!

  “Tremendously gripping. Unfolds like a chic, glossy spy thriller.” - Time Out
  “A star-studded political cataclysm for our times.” - Daily Telegraph
  “A superb cast in a ferocious, immersive Julius Caesar” - Sunday Times
  “Visceral and politically urgent.” - Guardian