Aularnir og bestu vinirnir Evan og Seth gera hér um bil hvað sem er til að vinna sér hylli stelpnanna. Þeir komast óvænt yfir heimboð í partý, og eyða heilum degi, ásamt nördavini sínum Fogell, í að komast yfir nægt áfengi fyrir partýið og til að fylla tvær stelpur, Jules og Becca, þannig að þeir geti misst sveindóminn, og farið í miðskóla eftir viðburðaríkt sumar og nýja reynslu og hæfileika. En áætlun þeirra flækist þegar Fogell lendir saman við tvær klaufskar löggur, sem hægja á þeim en aðstoða þá um leið. Ef þeir ná að redda áfenginu fyrir partýið, hvað gerist þá? Verður kynlífsreynslan eina karlmennskuraunin í boði?
Ekki missa af geggjaðri Föstudagspartísýningu 15. febrúar kl 20:00 á SUPERBAD, geggjaðri grínmynd með alvöru grófum húmor frá sömu aðilum sem færðu okkur THE 40-YEAR-OLD VIRGIN og KNOCKED UP.
P.S. Barinn/sjoppan verður stútfull af sætindum og partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!