Tix.is

Bíó Paradís

  • Frumsýnd 26.okt.
Um viðburðinn

Danskur thriller einsog þeir gerast bestir! Lögreglumaðurinn Asger Holm er kominn í skrifstofudjobb við að svara símtölum í neyðarlínuna og er ekki sá þolinmóðasti í bransanum. Dag einn fær hann símtal frá konu sem hefur verið rænt og það reynir á taugar hins fyrrverandi rannsóknarlögreglumanns þegar slóðin virðist teygja sig dýpra í glæp sem hann óraði ekki fyrir. Þessi spennutryllir mun halda þér á sætisbrúninni fram á síðustu mínútu!

HINN SEKI hlaut áhorfendaverðlaunin á bæði Sundance og Rotterdam, og hefur verið sýnd á sumum stærstu kvikmyndahátíðum heims við einróma lof gagnrýnenda.

Eingöngu sýnd með ENSKUM texta allt sumarið 2019!